Click on the flags for the different languages! Back to the English text

 

 

Verkefnaplan fyrir 2. ár verkefnisins

Leikir fyrr og nú.

Skýrið eða útbúið einhvern hefðbundinn leik. Vegna þess hve margir leikir eru til er frjálst að velja og útfæra.

Prakkarastrik afa og ömmu.

Börnin spyrja afa og ömmu hvaða prakkarastrik þau gerðu. Skrifa niður og teikna mynd eða útfæra á annan hátt.

Matreiðsla fyrr og nú.

Matreiða hefðbundna rétti með nemendum , taka myndir og þýða uppskriftirnar. Íslenski þátttökuskólinn gefur út matreiðslubókina.

Hefðbundnar hátíðir.

Hvaða dagar eru hátíðisdagar eða sérstakir dagar? Börnin teikna myndir sem notaðar eru fyrir sérstakan leik um hátíðisdagana.

Sögupokinn.

Skrifa og teikna þjóðsögu frá okkar svæði. Söguhetjurnar útbúnar úr trésleifum eða pappír. Allt sett í sögupokann.

Fótboltaleikur á Internetinu.

Börn eða bekkir taka þátt í fótboltaleik á netinu. Nemendur geta tekið þátt í þessum leik í skólanum sem bekkur eða einstaklinglega heima.

Evrópuferðalag “framhaldssaga”

Ein saga gengur á milli skólanna. Ferðasaga, með nýjum ævintýrum í hverjum nýjum skóla og bæ. Sagan byrjar í Svíþjóð og ferðast milli allra skólanna. Hver skóli skrifar sinn hluta.